Terms of service
EFTIRFARANDI SKILMÁLAR GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á SÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ GERA VIÐ MOVE WITH MARIT, NÚ EÐA SÍÐAR.
Ég mæli með því að þú kynnir þér skilmála Move With Marit (hér eftir "MWM") til að fyrirbyggja allan misskilning og stuðla að góðum samskiptum í framtíðinni.
Sem notandi á innri vef MWM berð þú ábyrgð á að tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna, þ.e. notendanafns og lykilorðs. Notanda er óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með öðrum aðilum eða veita öðrum aðgang að innri vef forritsins. MWM ber enga ábyrgð á hvers kyns tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að hljótast af því að aðrir aðilar komist yfir aðgangsupplýsingar notanda. Verði notandi var við að óviðkomandi aðili hefur komist yfir aðgangsupplýsingar hans, þá skal hann samstundis láta þjálfarann vita. Notandi ber einnig fulla ábyrgð á því að upplýsa þjálfara um heilsukvilla, ofnæmi og annað sem skipt getur máli við nýtingu á þjónstunni.
Verðskrá og áskriftir
Verð fyrir þjónustu MWM er í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni og má sjá upplýsingar um verð á heimasíðu MWM. MWM áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara. Þegar greitt hefur verið fyrir þjónustu þá er kominn gildandi samningur milli MWM og notanda. Gildistími samninga/áskrifta er ákveðinn í upphafi áður en ákveðin þjónusta er veitt. Bindistími áskrifta framlengist ekki sjálfkrafa en notandi getur óskað eftir framlengingu. Rukkun berst á gjalddaga í heimabanka og greiði notandi ekki innan 10 daga þá lokast á aðgang viðkomandi án nokkurrar fyrirvara eða endurgreiðslu og klára þarf að greiða fyrir tímabilið.
MWM áskilur sér rétt til að hætta við pantanir t.d. vegna rangra verðupplýsinga. MWM áskilur sér einnig rétt á að segja upp áskrift án endurgreiðslu gangi samskipti milli notanda og MWM ekki upp. Þarf notandi þá að klára að greiða fyrir áskriftina út tímabilið.
MWM ber ekki ábyrgð á:
- Óþægindum eða tjóni, beinu eða óbeinu, vegna bilana í tölvu- eða hugbúnaðarkerfum.
- Neinum upplýsingum eða gögnum sem notandi sendir til MWM í gegnum forritið.
- Meiðslum, slysum, mistökum eða öðru sem kann að leiða til skaðabótaskyldu eða refsiskyldu. Notandi nýtir þjónustu MWM á eigin ábyrgð og ber ávalt ábyrgð á eigin heilsu. MWM skuldbindur sig til að vernda upplýsingar og gögn notenda eftir fremsta megni.
Höfundarréttur
Með því að gerast notandi og kaupa þjónustu hjá MWM er aðila veittur aðgangur að efni og innihaldi innra vefs og honum heimiliað að nota það í samræmi við skilmála þessa. Notanda er með öllu óheimilt að afrita efni forritsins nema til eigin nota. Með efni og innihaldi MWM forritsins er t.d. átt við allar upplýsingar, persónulegar ráðleggingar, æfingaplön, matarplön, fræðsluefni eða annað. Öll dreifing, afritun eða endurútgáfa á efni og/eða innihaldi forritsins er óheimil.
Kaupsamningur
Þegar kominn er á samningur um kaup á þjónustu MWM þá er ekki hægt að stöðva þjálfun/þjónustu fyrr en að binditíma loknum (nema þjálfari og kúnni hafi skriflega ákveðið annað fyrirkomulag). Komi til uppsagnar af heilsufarsástæðum þá skal senda læknisvottorð. MWM áskilur sér þó rétt til að skoða hvert tilvik fyrir sig og meta eftir aðstæðum. Fari notandi ekki eftir skilmálum þessum þá áskilur MWM sér rétt til að segja samningi um þjónustu upp án nokkurs fyrirvara eða endurgreiðslna og notandi klárar að greiða fyrir umsamið tímabil.
Breytingar á skilmálum
Move With Marit áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum án fyrirvara. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á síðunni.
Trúnaður
MWM heitir fullum trúnaði um þær upplýsingar sem þú veitir. Þær upplýsingar eru
- Nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Samskipti við þjálfarann
- Æfingaplön/matarplön sem þú færð og önnur sambærileg gögn
- Mælingar
- Myndir
- Heilsufarsupplýsingar
MWM mun hvorki safna né vinna persónulegar upplýsingar um þig í öðrum tilgangi en þeim að veita þér bestu þjónustu og mögulegt er. Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki þitt fyrir veitingu persónuupplýsinga og eftir atvikum fengið þeim eytt.
Skilmálar þessir gilda frá 1. ágúst 2025